11 nóv. 2026

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 10/2026-2027

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Djordje Arsic, leikmaður Vængjir Júpíters, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshöfn U gegn Vængjum Júpíters í 2 deild karla, sem fram fór þann 1 nóvember 2026.

Agamál 11/2026-2027

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði,Jóhann Árni Ólafsson , þjálfari Njarðvík, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvík gegn KR/KV í 12 flokki karla, sem fram fór þann 4 nóvember 2026.