8 apr. 2022KKÍ stendur fyrir sex þjálfaranámskeiðum núna í vor og næsta haust. Tvö námskeið verða haldin í maí, KKÍ 1A og KKÍ 2A, en næsta haust verða KKÍ 1A, 1B, 1C og 2B haldin. Gott er að hafa í huga að þeir þjálfarar sem hyggjast sækjast eftir því að fara í FECC þurfa hið minnsta að hafa klára þjálfarastig KKÍ 1 og 2 ásamt ÍSÍ 1 og 2.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á KKÍ 1A og KKÍ 2A, en vakin er athygli á því að aðeins þeir sem hafa greitt fyrir námskeið fá að taka þátt. Við bendum á að hægt er að sækja styrki fyrir þjálfaranámskeiðum, en oft veita stéttarfélög styrki fyrir þátttöku á námskeiðum. Frekari upplýsingar um námskeiðin eru veittar á skrifstofu KKÍ.
Meira