25 okt. 2017Samkvæmt reglugerð KKÍ um félagaskipti mun félgaskiptaglugginn loka þann 15. nóvember á miðnætti fyrir meistaraflokka og unglingaflokka karla og kvenna fram til 1. janúar 2018.
Í 3. gr. um tímabil félagaskipta segir:
Félagaskipti í meistaraflokki karla og kvenna ásamt unglingaflokki karla og kvenna eru heimil frá og með 1. júní til og með 15. nóvember en óheimil frá og með 16. nóvember til og með 31. desember. Þau eru svo heimil frá og með 1. janúar til og með 31. janúar en óheimil frá 1. febrúar til og með 31. maí.
Félagaskipti eru frjáls í öllum öðrum flokkum KKÍ, nema frá og með 1. febrúar til og með 31. maí ár hvert en á þeim tíma eru öll félagaskipti óheimil.
Meira