9 ágú. 2017Í dag hélt íslenzka karlalandsliðið í körfuknattleik í æfingaferð til Rússlands. Rússneska körfuknattleikssambandið hefur boðið liðinu að taka þátt í móti sem fram fer í borginni Kazan, sem er í um 720 km. fjarlægð austur af Moskvu.
Mótið er fjögurra landa mót, sem er liður í undirbúningi liðanna sem taka þátt, fyrir lokamót EM, EuroBasket 2017.
Liðin sem taka þátt auk Rússlands og Íslands eru lið Þýskalands og Ungverjalands.
Meira