6 maí 2024

Hrunamenn/Selfoss varð meistari 2. deildar ungmennaflokks karla á sunnudag með sigri á Skallagrím í úrslitaleik í Vallaskóla á Selfossi. Hrunamenn/Selfoss tóku strax stjórn á leiknum og sigldu heim öruggum sigri.

Óðinn Freyr Árnason var valinn maður leiksins, en hann skilaði 30 stigum, 4 stoðsendingum og 3 fráköstum.

Til hamingju Hrunamenn/Selfoss!