21 ágú. 2026
Við viljum fá að segja takk kærlega fyrir ykkur sem hjálpuðuð okkur við setja saman metnaðarfullar æfingatöflur yngri landsliðanna í sumar. Svona verkefni er heilmikið púsluspil og ekki hægt án aðstoðar.
Öll aðildarfélög KKÍ og sveitarfélögin sömuleiðis - takk fyrir liðlegheitin. Við æfðum út um allt og náðum með ykkar aðstoð að púsla öllu saman, sem er ekki sjálfsagt og við erum þakklát fyrir samvinnuna.
Allt þetta hjálpar og telur heilmikið þegar árangurinn er tekinn saman.
Eitt stórt takk frá okkur til ykkar!