/KKI%20logo%20-%20net%20-%20minni.png)
19 ágú. 2026
Þann 5. september stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.
Námskeiðið hefst kl. 9:00 og stendur fram til kl. 17:00. Allir þátttakendur ljúka námskeiði sem dómarar og geta, hafi viðkomandi áhuga á því, farið á niðurröðun dómaranefndar. Boðið verður upp á hádegismat.
Þátttakendur þurfa að mæta með tölvu eða spjaldtölvu á námskeiðið.
Efni námskeiðsins snýr að grunni í dómgæslu, s.s. leikreglum og staðsetningu á leikvelli.
Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi námskeiðið, sendu okkur þá póst á kki@kki.is
Námskeiðið verður haldið ef að þátttaka verður nægjanleg.


