16 sep. 2026

KKÍ hefur nú í samstarfi við ORIGO þróað nýtt rafrænt félagaskiptakerfi sambandsins. Hér á forsíðunni er tengill á kerfið en jafnframt er hægt að fara beint inn á felagaskipti.kki.is

Við þökkum starfsfólki ORIGO fyrir flotta vinnu í kringum þetta ferli. Einnig þökkum við þeim fulltrúum félaganna sem hafa aðstoðað okkur við prófanir undanfarnar vikur.

Félögin fengu kynningu á kerfinu á upplýsingafundi KKÍ þann 4. september síðastliðinn en kerfið er tilbúið til notkunar og munu innlend félagaskipti fara pappírslaust í gegnum kerfið. Nýskráning erlendra leikmanna er með sama hætti og áður. 

Allar fyrirspurnir varðandi félagaskipti skal senda á felagaskipti@kki.is

Þessi breyting, að gera félagaskiptin almennt rafræn, er klárlega leikbreytir fyrir starf skrifstofunnar og félaganna. Þessi vegferð er eitt jákvætt skref af vonandi mörgum í átt til framtíðar innan körfuboltahreyfingarinnar á Íslandi.