18 ágú. 2026
Magnaður árangur U16 ára landsliðs drengja í B-deild EuroBasket í Norður-Makedóníu 6. - 15. ágúst 2026

Strákarnir okkar í U16 ára landsliði drengja unnu sér inn sæti í A-deild EuroBasket að ári með virkilega flottri frammistöðu í B-deildinni þetta sumarið. Strákarnir áttu frábært mót og fóru alla leið í úrslitaleik keppninnar þar sem liðið beið lægri hlut gegn gríðarlega sterku liði Króatíu.

Riðlakeppnin var virkilega skemmtileg en strákarnir gáfu aldrei tommu eftir. Byrjuðu á góðum sigri gegn Úkraínu í fyrsta leik og unnu svo Makedóníu í kjölfarið. Þriðji leikurinn var risasigur gegn Sviss, 44 stiga munur og daginn eftir sigldu strákarnir spennusigri í hús gegn Kýpur. Úrslitaleikur riðilsins var leikur gegn Króatíu en sá leikur var ójöfn barátta og öruggur sigur Króata staðreynd.

4 sigrar í 4 leikjum tryggði öruggt sæti í 8-liða úrslitum þar sem Montenegró (Svartfjallaland) var mótherjinn en áfram gáfu okkar drengir ekkert eftir og þægilegur sigur varð raunin. Undanúrslitin voru gegn sterkum Bosníumönnum sem unnu sterka Breta í 8-liða úrslitum. Strákarnir unnu vægast sagt öruggan sigur og 44 stiga munur í annað sinn á mótinu. 

Okkar piltar gerðu ótrúlega atlötu að því að klára úrslitaleikinn gegn Króatíu með sigri og voru  með yfirhöndina þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks en þriggja stiga karfa Króata á síðustu sekúndum leiksins tryggði þeirra sigur og 2. sætið varð hlutskipti okkar liðs. Frábær árangur í alla staði og öll sem tengjast liðinu geta verið stolt af afrekinu að koma sér upp í A-deildina og vera þannig eitt af 16 bestu U16 landsliðum Evrópu.

Atli Freyr í úrvalslið mótsins
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var valinn í úrvalslið mótsins enda stóð hann sig með miklum glæsibrag. Atli Freyr skoraði að meðaltali 14,5 stig í leik, tók 9,5 fráköst og varði 1,8 bolta. Meðalframlagspunktar Atla voru 23,2 - glæsilega gert.

Úrslit leikja Íslands í B-deild Eurobasket í Gevgalija og Skopje í Norður-Makedóníu 2026:


Riðlakeppnin B-riðill:
ÍSLAND 88 - 77 Úkraína
ÍSLAND 87 - 75 N-Makedónía 
ÍSLAND 96 - 52 Sviss 
ÍSLAND 61 - 58 Kýpur 
ÍSLAND 53 - 80 Króatía 

8-liða úrslit:
ÍSLAND 91 - 69 Montenegró

Undanúrslit
ÍSLAND 95 - 51 Bosnía 

Úrslitaleikur
ÍSLAND 67 - 69 Króatía

2. sæti B-deildarinnar tryggði sæti Íslands í A-deildinni næsta sumar sem er virkilega ánægjulegt og sögulegt á sama tíma þar sem þetta er í fyrsta sinn sem Ísland mun eiga 3 lið samtímis í A-deild EuroBasket.

U16 ára landslið drengja sem lék í B-deild EuroBasket í Gevgalija og Skopje í Norður-Makedóníu 2026 var þannig skipað:
Arnar Freyr Elvarsson - Keflavík
Árni Atlason - Breiðablik
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson - Valur
Baltasar Torfi Hlynsson - Stjarnan
Davíð Breki Antonsson - Keflavík
Hlynur Ingi Finnsson - Sindri
Jón Breki Sigurðarson - Stjarnan
Kormákur Nói Jack - Stjarnan
Marínó Ómarsson - Stjarnan
Sigurður Karl Guðnason - Keflavík
Sindri Logason - Haukar
Úlfur Týr Ágústsson - Stjarnan

Þjálfari liðsins er Dino Stipcic og honum til aðstoðar eru Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.

Glæsilegt mót - innilega til hamingju!

Áfram ÍSLAND!