
18 ágú. 2026Bæði A-landslið Íslands, karla og kvenna, æfa hérlendis þessa dagana áður en liðin halda erlendis í verkefni.
A-landslið kvenna mætir Portúgal í tveimur vináttuleikjum í Lissabon um helgina, 21. og 22. ágúst en þessir leikir eru liður í undirbúningi landsliðsins fyrir næsta keppnisglugga sem er í nóvember en þá spila stelpurnar þrjá leiki í for-undankeppni EuroBasket 2029.
A-landslið karla mætir Finnlandi í vináttuleik í Helsinki föstudaginn 21. ágúst áður en þeir halda beint til Belgrad í Serbíu þar sem næsti fasi undankeppni HM 2027 heldur áfram. Þeir mæta Serbíu í Belgrad föstudaginn 28. ágúst og koma svo heim að spila við Tyrki í Laugardalshöll mánudaginn 31. ágúst.
Við þetta tilefni náðum við að hitta á Craig og Pekka, A-landsliðsþjálfarana okkar, en það er virkilega gaman að hafa þá báða á landinu á sama tíma með æfingar.


