15 sep. 2026Fræðslufundur fyrir nýja og nýlega dómara 🏀

KKÍ hélt fræðslufund fyrir nýja og nýlega dómara í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 12. september. Markmiðið var að styðja dómara á fyrstu skrefunum, efla leikskilning þeirra og fara yfir praktísk atriði sem fylgja dómarastarfinu.

Jón Bender, formaður dómaranefndar KKÍ, fjallaði um nefndina og samskipti við hana. Bjarki Kristjánsson, formaður KKDÍ, kynnti félagið og praktísk málefni dómara. Rúnar Birgir, FIBA Commissioner, fór yfir niðurröðunarkerfið, dómaraviðmótið, ritaraborðið og skýrslugerð.

Konráð Brynjarsson miðlaði reynslu sinni af dómgæslu í yngri flokkum og Kristinn Óskarsson fjallaði um grunnatriði góðrar dómgæslu, meðal annars leikskilning, staðsetningar, ákvarðanatöku og framkomu.

Áherslan var á að tengja reglurnar við aðstæður á vellinum og hjálpa dómurum að mæta verkefnum sínum af þekkingu og öryggi. Fundurinn var jafnframt tækifæri til að kynnast öðrum dómurum og þeim stuðningi sem stendur til boða innan dómarahópsins.

KKÍ þakkar þátttakendum og fyrirlesurum fyrir daginn og óskar dómurum góðs gengis á komandi tímabili!