
16 júl. 2026
Stelpurnar okkar í U20 ára landsliði kvenna gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt í A-deild EuroBasket að ári með stórkostlegri frammistöðu á mótinu að þessu sinni sem fram fór í Alytus í Litháen dagana 4.-12.júlí 2026. Liðið stimplaði sig strax til leiks með ótrúlegum sigri gegn sterku liði Serbíu og þá varð ljóst að þetta gæti orðið flott mót hjá unga og efnilega U20 ára liðinu okkar en meðalaldur liðsins spannaði 17,9 ár sem gerir þetta allt saman enn merkilegra í stærra samhengi hlutanna. Liðsheild, samheldni og stemning einkennir þennan frábæra hóp sem endaði í 12.sæti keppninnar eftir mjög góða sigra á mótinu. Glæsilegur árangur hjá okkar stúlkum!
Hin unga og efnilega Berglind Katla, sem er einungis 16 ára, var tilnefnd sem ein af 10 mikilvægustu leikmönnum A-deildarinnar á opinberri heimasíðu mótsins. Berglind skoraði 21,3 stig að meðaltali í leik, tók 4,8 fráköst, átti 3,8 stoðsendingar og stal sömuleiðis 1,8 bolta að meðaltali. Virkilega vel gert og til hamingju með tilnefninguna Berglind.
Við óskum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með frábæran árangur á mótinu og hlökkum til að sjá þetta unga lið aftur í A-deildinni næsta sumar!
Úrslit leikja Íslands í A-deild EuroBasket í Alytus í Litháen 2026:
Riðlakeppnin C-riðill:
ÍSLAND 78 - 74 Serbía
ÍSLAND 67 - 86 Pólland
ÍSLAND 86 - 79 Ítalía
16-liða úrslit:
ÍSLAND 62 - 84 Tyrkland
Umspil um sæti 9-16
ÍSLAND 86 - 61 Svíþjóð
Umspil um sæti 9-12
ÍSLAND 74 - 85 Þýskaland
Leikur um 11.sætið
ÍSLAND 80 - 85 Lettland
U20 ára landslið kvenna sem lék á mótinu var þannig skipað:
Arndís Rut Matthíasdóttir
Berglind Katla Hlynsdóttir
Elísabet Ólafsdóttir
Emma Karólína Snæbjarnardóttir
Hanna Gróa Halldórsdóttir
Heiðrún Hlynsdóttir
Hulda Agnarsdóttir
Kolbrún María Ármannsdóttir
Rebekka Rut Steingrímsdóttir
Sara Björk Logadóttir
Þjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar voru Arnór Gauti Ragnarsson og Margrét Ósk Einarsdóttir.
Til hamingju öll aftur með frábæran árangur í gríðarsterkri A-deild FIBA U20 EuroBasket.


