28 mar. 2023

Reglugerð um körfuknattleiksmót hefur verið uppfærð í samræmi við samþykktir 55. Körfuknattleiksþings. Stjórn KKÍ 2023-2025 samþykkti á fyrsta fundi sínum í gærkvöldi að umræddar breytingar tækju gildi eftir þetta keppnistímabil. Breytt reglugerð mun því taka gildi frá og með 20. maí 2023. Eldri reglugerð um körfuknattleiksmót gildir út þetta tímabil, eða til og með 19. maí 2023.

Lög KKÍ hafa einnig verið löguð með hliðsjón af samþykktun þingsins.