5 jan. 2022

Stjórn KKÍ kom saman á fjarfundi í morgun og tók þá ákvörðun að færa VÍS bikarinn til 16.-20. mars 2022 að tillögu mótanefndar. Þetta þýðir að fyrirhuguð VÍS bikarvika verður ekki leikin í næstu viku. Þetta er gert í ljósi fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun, en sú smitbylgja sem nú gengur yfir hefur þegar haft talsverð áhrif á mótahaldið, en hundruðir einstaklinga eru þátttakendur í VÍS bikarvikunni.

Stjórn KKÍ samþykkti einnig tillögu mótastjóra og mótanefndar um framhald keppni allra flokka og deilda, sem og fyrirkomulag úrslitakeppni yngri flokka, sem fram kemur í minnisblaði mótastjóra en það fylgir með hér í viðhengi.

Allar upplýsingar tengdar mótahaldi gefur Snorri Örn mótastjóri.

Umrætt minnisblað má nálgast hérna.