30 maí 2021

Fjölnir er Íslandsmeistari 10. flokks drengja eftir 72-55 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik í Mathús Garðabæjarhöll Stjörnunnar í dag.

Leikurinn var jafn og fjörugur framan af, en Fjölnir tók öll völd á vellinum í öðrum leikhluta. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Stjörnunnar til að minnka muninn, þá varð þeim aldrei almennilega kápan úr því klæðinu. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Brynjar Kári Gunnarsson var bestur Fjölnismanna í leiknum og var útnefndur maður leiksins í leikslok. Hann var með 19 stig, 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 2 varin skot.
Kristján Fannar Ingólfsson var bestur Stjörnumanna með 18 stig.