14 jún. 2016Lið Njarðvíkur hefur þegið sæti í Domino´s deild kvenna á næsta keppnistímabili þar sem Hamar ákvað að skrá liðið ekki til leiks. Mótanefnd leitaði til Njarðvíkur og náði félagið sætið.

Domino´s deild kvenna verður því skipuð átta liðum næsta vetur eins og reglugerð segir til um.