20 jún. 2002Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði í dag fyrir Albaníu, 71-83, í öðrum leik sínum á Promotion Cup í Andorra. Þær albönsku sterkari á lokasprettinum og þá voru átta þriggja stiga körfur í seinni hálfleik og þrettán samtals of stór biti fyrir íslensku stelpurnar. Helga Þorvaldsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 20 stig en Anna María Sveinsdóttir og Birna Valgarðsdóttir gerðu 13 stig hvor. Íslenska liðið leikur í undanúrslitum á mótinu á morgun gegn líklega liði Kýpur en það verður ekki endanlega ljóst fyrr en í kvöld. Íslenska liðið byrjaðì leikinn vel og þá sérstaklega Helga Þorvaldsdóttir sem gerðì 14 af 19 stigum liðsins í fyrsta leikhluta en eftir hann hafði íslenska liðið forustu 19-16. Albanía leiddi í leikhléi 36-38 en góð byrjun íslensku stelpnanna í seinni hálfleik skilaði átta stiga forustu, 52-44. En þá hófst þriggja stiga skotsýning albönsku stelpnanna, fyrst tvær í lok þriðja leikhluta sem hjálpuðu til að ná muninum niður í tvö stig, 55-53. Albönsku settu síðan niður fimm þriggja stiga körfur í fjórða leikhluta sem þær unnu 30-16 og leikinn þar með 71-83. Stig íslenska liðsins í leiknum: Helga Þorvaldsdóttir 20 (14 stig í fyrsta leikhluta, 4 fráköst, 3 stoðsendingar, hitti ur 7 af 14 skotum), Anna María Sveinsdóttir 13 (10 fráköst, 5 stoðsendingar), Birna Valgarðsdóttir 13 (5 fráköst, 4 í sókn), Guðbjörg Norðfjörð 12 (9 fráköst, 3 stoðsendingar), Kristín Björk Jónsdóttir 6, Hildur Sigurðardóttir 3 (7 stoðsendingar), Signý Hermannsdóttir 2 (8 fráköst, 4 varin skot), Kristín Blöndal 2. Svava Ósk Stefánsdóttir, Lovísa Guðmundsdóttir og Helga Jónasdóttir komu ekki við sögu í leiknum og Erla Þosteinsdóttir var frá vegna meiðsla sem hún hlaut í fyrsta leiknum. mt. Helga Þorvaldsdóttir var stigahæst gegn Albaníu.