4 maí 2001Utah Jazz tapaði fimmta leiknum gegn Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í gærkvöldi 83-84. Karl Malone brenndi af opnu stökkskoti frá vítalínu á síðustu sekúndu leiksins og Dallas vann þar með fyrsta einvígi sitt í úrslitakeppni frá árinu 1988. Utah féll nú úr keppni í 1. umferð úrslitakeppninnar í fyrsta sinn síðan 1995. Ef til vill var þetta síðasta tækifæri Utah að krækja í meistaratitilinn, en helstu driffjaðrir liðsins þykja vera komnar nokkuð við aldur. Því má segja að nokkuð þáttaskil hafi orðið í NBA í gær þegar Utah féll úr leik, ef til vill fyrir fullt og allt í baráttunni um meistaratitilinn?[v+]skjol/May 4 Update1.pdf[v-]Öll fréttin[slod-].