Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

FIBA: Birgir Örn á dómaranámskiði milli jóla og nýárs

4 jan. 2024Birgir Örn Hjörvarsson, körfuknattleiksdómari, hélt út milli jóla og nýárs til Kortrijk í Belgíu á vegum KKÍ, þar sem FIBA var með námskeið fyrir „Potential National Referees“. Þar dæmdu þátttakendur á U19 X-Mastournament mótinu sem þar fór fram og væntanleg dómaraefni í gegnum ýmsa þjálfun og fræðslu auk þess að dæma leiki á mótinu. Þátttakendur voru tilnefndir hver frá sínu landi, en eingöngu voru alls 24 þátttakendur samþykktir á námskeiðið, og var Birgir Örn einn þeirra. Það verður spennandi að fylgjast með Birgi Erni í framhaldinu en hann á möguleika á að verða fullgildur FIBA dómari á næstu árum.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið á næstunni

3 jan. 2024Opnað hefur verið fyrir skráningu á KKÍ 1B og KKÍ 2B. Frekari upplýsingar um námskeiðin má finna með því að smella á fréttina.Meira
Mynd með frétt

Körfuknattleiksfólk ársins 2023 · Sara Rún og Elvar Már kjörin best

20 des. 2023Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2023 af KKÍ. Þetta er í 26. skipti sem valið er tvískipt milli karla og kvenna eða allt frá árinu 1998. Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn og starfsmönnum KKÍ, afreksnefnd KKÍ og landsliðsþjálfurum. Bæði voru þau ríkjandi Körfuknattleiks karl og kona síðasta árs. Elvar Már er nú að fá tilnefninguna í þriðja sinn og Sara Rún er að hljóta nafnbótina í fjórða sinn og fjórða árið í röð. Níu karlar fengu atkvæði og ellefu konur.Meira
Mynd með frétt

Æfingar yngri landsliða · Jól 2023

17 des. 2023Um helgina hafa farið fram landsliðsæfingar yngri landsliða Íslands en um er að ræða fyrstu æfingahópa í U15, U16, U18 og U20 landsliðum drengja og stúlkna fyrir sumarið 2024. Landsliðsþjálfarar liðanna boðuðu sína fyrstu hópa til æfinga og hafa þau æft annaðhvort frá föstudegi eða laugardegi en hvert lið æfir þrisvar sinnum Það voru 332 einstaklingar sem voru boðaðir til æfinga frá 27 íþróttafélögum af öllum landinu og erlendum félögum. Ljóst er að framtíðin er björt í íslenskum körfubolta með alla þá hæfileikaríku einstaklinga sem hafa verið valin og þá aðila sem er leggja hart að sér alla daga við að æfa íþróttina sem við öll elskum. Auk þessu fóru yngri hóparnir þrír í HR-mælingar að venju og öllum var boðið á fræðslufyrirlestur á föstudaginn samhliða æfingunum um helgina. Þá var foreldrum einnig boðið á fræðslufund fyrir foreldra um landsliðsstarfið og verkefnin framundan hjá hverju landsliði næsta sumar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 13 DESEMBER 2023

14 des. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

VÍS Bikarinn · Viðureignirnar í 8-liða úrslitunum

13 des. 2023Dregið var í 8-liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna rétt í þessu en fjórar viðureignir eru framundan í VÍS Bikarnum. Leikið verður dagana 20.-22. janúar 2024. Eftir það verða 4-liða úrslitin klár, en þau fara fram 19. og 20. mars í Laugardalshöll, en úrslitaleikir karla og kvenna verða síðan laugardaginn 23. mars ásamt úrslitaleikjum yngri flokka þá helgi einnig á VÍS Bikar-hátíðinni sem haldin verður þá vikuna með pompi og prakt.Meira
Mynd með frétt

EuroCup Women: Rúnar Birgir og Davíð Tómas með verkefni í desember

13 des. 2023Þeir félagar, Davíð Tómas Tómasson, FIBA dómari, og Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður, verða með flott verkefni fyrir FIBA á næstu dögum. Um er að ræða leiki í 32-liða úrslitum EuroCup Women en sigurvegarar leikjanna fara áfram í 16-liða úrslitin. Fyrst verður Davíð Tómas með leik í annað kvöld 14. desember þar sem hann verður aðaldómari leiksins en það er leikur í milli Kangoeroes Basket Mechelen frá Belgíu og Lointek Gernika Bizkaia frá Spáni, en leikið er í Mechelen í Belgíu. Meðdómarar hans koma frá Frakklandi og Írlandi og eftirlitsmaðurinn frá Danmörku. Davíð Tómas og Rúnar Birgir verða svo saman á ný líkt og nýverið með leik saman þann 21. desember þegar þeir fara til East Kilbride rétt fyrir utan Glasgow í Skotlandi og verða á leik Caledonia Gladiators og NKA Universitas PEAC frá Ungverjalandi. Með þeim verður aðaldómarinn frá Grikklandi og meðdómari hans og Davíðs kemur frá Lettlandi. KKÍ óskar þeim félögum Rúnari Birgi og Davíð Tómasi góðs gengis í sínum störfum.Meira
Mynd með frétt

Fyrstu æfingahópar yngri landsliða fyrir sumarið 2024

1 des. 2023Þjálfarar landsliða U15, U16, U18 drengja og stúlkna og U20 karla og kvenna hafa nú valið og boðað sína fyrstu æfingahópa sem æfa um miðjan desember. Þetta eru fyrstu stóru æfingahóparnir hjá hverju liði en upp úr þessum hópum verður svo valið í næstu minni æfingahópa sem koma til æfinga í febrúar næstkomandi. Öll liðin hafa verkefni á komandi sumri en þá munu U15 liðin fara í mót eða verkefni með Norðurlöndunum og svo eru U16, U18 og U20 öll að fara á NM í lok júní og byrjun júlí og svo halda þau öll á EM mót FIBA hvert um sig í kjölfarið. Öll íslensku liðin leika í B-deild Evrópumótsins nema U20 karla sem leika í A-deild líkt og í fyrra. Í A-deildum eru eingöngu topp 16 landsliðin í hverjum árgangi ár hvert og 2-3 lið fara upp og niður milli ára, og þá eru öll önnur lönd í B-deildunum, auk nokkurra í C-deildum. Æfingahóparnir í desember eru þannig skipaðir:Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 30 NÓVEMBER 2023

1 des. 2023 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 29 NÓVEMBER 2023

30 nóv. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

EuroCup Women: Rúnar Birgir og Davíð Tómas saman að störfum í kvöld

29 nóv. 2023Í kvöld fer fram leikur London Lions Group Limited og Rutronik Stars Keltern frá Þýskalandi í EuroCup Women sem er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þar mun Ísland eiga tvo fulltrúa. Þeir félagar Davíð Tómas Tómasson, FIBA dómari, og Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður, verða saman að störfum í leiknum í kvöld sem fram fer í Copper Box Arena í London. Rúnar Birgir verður eftirlitsmaður leiksins en Davíð Tómas verður að þessu sinni aðaldómari leiksins og meðdómarar hans verða þau Emma Perry frá Írlandi og Petr Blahout frá Tékklandi.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 22 NÓVEMBER 2023

23 nóv. 2023 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Subway deild kvenna | Þór Ak.-Keflavík frestað

22 nóv. 2023Leik Þórs Ak. og Keflavíkur í Subway deild kvenna sem er á dagskrá í kvöld hefur verið frestað eftir að flugi norður var aflýst. Unnið er að því að finna nýjan leikdag.Meira
Mynd með frétt

FIBA verkefni: Jón, Davíð Tómas og Rúnar Birgir að störfum

21 nóv. 2023Í kvöld og á morgun eru íslenskir FIBA dómarar og eftirlitsmenn áfram í eldlínunni og verða með þrjú verkefni á dagskránni. Jón Bender, eftirlitsmaður FIBA, verður í Copper Box Arena í London í kvöld og stýrir leik London Lions Group Limited gegn Mithra Castors Braine frá Belgíu í EuroCup Women. Dómarar í leiknum eru frá Noregi, Frakklandi og Ungverjalandi. Leikurinn hefst kl. 19:00. Á morgun miðvikudag verður Davíð Tómas Tómasson FIBA dómari í Póllandi að dæma leik Anwil Wloclawek gegn ABC CSU Sibiu frá Rúmeníu í FIBA Europe Cup karla. Auk Davíðs Tómasar koma dómarar leiksins frá Tyrklandi og Þýskalandi og eftirlitsmaðurinn frá Danmörku. Á sama tíma á morgun er Rúnar Birgir Gíslason FIBA eftirlitsmaður í Svíþjóð með nágrannaslag Norrköping Dolphins gegn Bakken Bears Aarhus í FIBA Europe Cup karla. Jón Bender var nýverið eftirlitsmaður á fyrri leik liðana sem fram fór í Danmörku og þar hafði sænska liðið betur. Dómarar leiksins á morgun eru frá Litháen, Tékklandi og Bretlandi.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 15 NÓVEMBER 2023

16 nóv. 2023 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Davíð Tómas dæmir í FIBA Europe Cup karla í kvöld

15 nóv. 2023Davíð Tómas Tómasson, FIBA dómari, verður í verkefni í kvöld en þá mætir Zorg en Zekerheid Leiden frá Hollandi liði BC Trepca frá Kosovó í riðlakeppni FIBA Europe Cup. Leikið er á heimavelli Leiden í Hollandi en mótherjar Leiden léku í undankeppni keppninnar gegn Tindastól í upphafi leiktíðarinnar og var það lið sem fór áfram upp úr þeim undanriðli. Meðdómarar Davíðs koma frá Litháen og Grikklandi og eftirlitsmaður leiksins er frá Bretlandi. KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í þessu verkefni í kvöld en hægt verður að horfa á leikinn í opnu streymi á Youtube-síðu keppninnar: www.fiba.basketball/europecup/23-24/game/1511/ZZ-Leiden-BC-TrepcaMeira
Mynd með frétt

Dómaranámskeið á ensku 25. nóvember

14 nóv. 2023Laugardaginn 25. nóvember nk. stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði á ensku. Námskeiðið er opið öllum þeim sem tala ensku, hverrar þjóðar sem þeir eru. Frekari upplýsingar um námskeiðið fylgja hér fyrir neðan á ensku. On 25 November 2023, the Icelandic Basketball Federation will host an English referee clinic. This clinic is open to anyone who speaks English. The clinic starts at 09:00, and everyone will get lunch included. The clinic will be held at Engjavegur 6, 104 Reykjavik, 3rd floor (https://ja.is/korfuknattleikssamband-islands/). Aðalsteinn Hjartarson, FIBA referee instructor, will host the clinic. All participants will graduate as referees. Those who are interested can start refereeing official basketball games in Iceland. All referees are paid for their work, which is a chance to add to your income stream. All participants need to bring their computer or tablet for the course. The course material includes the basics of refereeing, such as the rules of the game and referee mechanics. Graduates can immediately referee in the lower men's leagues and the older youth groups. Everyone who graduates will also receive a referee whistle. Registration is now open! Please contact the federation by email at kki@kki.is if you have any thoughts or questions about the course. Registration is now open! Don't hesitate to contact the federation by email at kki@kki.is if you have any thoughts or questions about the course.Meira
Mynd með frétt

Landslið kvenna: ÍSLAND-TYRKLAND kl. 18:30 · Ólafssal Hfj.

12 nóv. 2023Íslenska kvennalandsliðið leikur seinni leik sinn í þessum landsliðsglugga í undankeppni EM, EuroBasket Women's 2025 kl. 18:30 í dag og mun RÚV2 sýna beint frá leiknum. Leikið verður í Ólafssal á Ásvöllum. LYKILL býður öllum frítt á leikinn í kvöld! Einn nýliði mun leika sinn fyrsta landsleik í kvöld, en Jana Falsdóttir, Njarðvík, sem er í hóp í fyrsta sinn. Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari ákvað að hún muni koma inn í liðið fyrir Söru Líf Boama, frá Val, en Sara Líf lék fyrri leikinn ytra gegn Rúmeníu á fimmtudaginn. Íslenska liðið er þannig skipað í dag gegn Tyrklandi í Ólafssal:Meira
Mynd með frétt

Vegna ástandsins í Grindavík

11 nóv. 2023Vegna þessa ástands sem nú ríkir hjá Grindvíkingum vil ég byrja á á því að senda hlýjar kveðjur til allra Grindvíkinga frá KKÍ og körfuknattleiksfjölskyldunni. Það er búið að vera mikið álag á okkar fólki í körfuknattleiksdeild Grindavíkur undanfarna daga og sólarhring, að beiðni formanns körfuknattleiksdeildar Grindavíkur Ingibergs Þórs Jónassonar sendi ég hans þakkir og stjórnar deildarinnar fyrir alla þá aðstoð og kveðjur sem fulltrúar körfuknattleikshreyfingarinnar hafa sent til Grindavíkur. Númer eitt núna um helgina er að Grindavíkingar allir, eru að reyna að átta sig á aðstæðum og finna út úr sínum nauðsynlegustu málum. Grindvíkingar og við hjá KKÍ þurfum að fá tíma til að sjá hvernig hlutirnir þróast allra næstu daga en öllum má vera ljóst að ekki verður spilað í Grindavík á næstu dögum og hugsanlega mun mótahald okkar raskast eitthvað vegna þessa. Þetta er allt að gerast mjög hratt og verður unnið að lausn á þeim málum sem þarf að leysa í samráði við körfuknattleiksdeild Grindavíkur og yfirvöld. Við þökkum þeim aðildarfélögum okkar sem nú þegar hafa haft samband við Grindvíkinga og boðið fram aðstoð sína þannig að ungir iðkendur Grindavíkur geti mætt á æfingar hvar sem þau eru stödd á landinu, við vitum að öll okkar aðildarfélögn munu bjóða Grindvíkinga velkomna til sín enda er mikilvægt ungir iðkendur nái halda í sína rútínu eins og hægt er við aðstæður sem þessar. Að lokum það sem skiptir mestu máli núna og við sjáum svo vel er almenn samstaða með Grindvíkingum öllum og við öll verðum að gefa þeim ráðrúm til að ná utan um atburði síðasa sólarhrings. Hlýjar kveðjur frá KKÍ og körfuknattleikshreyfingunni til allra Grindvíkinga. F.h. KKÍ Hannes S. Jónsson framkvæmdastjóriMeira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 8 NÓVEMBER 2023

9 nóv. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira