Ár 2007, mánudaginn 16. apríl er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins. Fyrir er tekið: Mál nr. 4/2007 Körfuknattleiksdeild UMFH gegn ÍKHÍ Í málinu er kveðinn upp svofelldur DÓMUR I Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 5. mars sl. og gögn málsins send formanni dómsins með símbréfi sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Ungmennafélags Hrunamanna, Flúðum. Kærði er ÍKHÍ körfuknattleiksfélag, Laugarvatni. Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ. Dómkröfur Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli aðila máls þessa í II. deild karla, riðli A-5, sem fram fór 26. febrúar sl. Kærði gerir ekki kröfur í málinu. Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. 2 skýrsla leiks aðila. II Dómari málsins hlutaðist til um að starfsmenn skrifstofu KKÍ gæfu kærða frest til að til að tjá sig um málið en það hefur hann ekki gert. Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Svavar Geir Pálmason og Snorri Þorvaldsson en hvorugur þeirra hafi verið gjaldgengir með liði kærða. Síðustu félagskipti þeirra hafi verið úr Laugdælum í lið Þórs, Þorlákshöfn. Auk þess hafi þeir báðir leikið með liði Þórs á þessu keppnistímabili og ekki skipt yfir í lið kærða. Kröfum sínum til stuðnings vísar kærandi til a. liðs 1. gr. reglugerðar KKÍ um félagaskipti. III Niðurstaða Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæði 8. gr. laga um dómstól KKÍ. Þar sem kærði hefur ekki látið málið til sín taka verður að leggja til grundvallar að lýsing kæranda á atvikum máls séu réttar. Samkvæmt því var lið kærða ólöglega skipað í umræddum leik og ber þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst ÍKHÍ því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0. Kærði hefur áður á þessari leiktíð gerst sekur um brot á reglum KKÍ sem varðað geta sektum. Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir rétt að dæma hann til að greiða 30.000 króna sekt til KKÍ. Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga hefur dregist vegna anna dómarans. DÓMSORÐ ÍKHÍ, körfuknattleiksfélag telst hafa tapað leik gegn körfuknattleiksdeild Ungmennafélags Hrunamanna í II. deild karla riðli A-5 sem fram fór 26 febrúar 2007 með stigatölunni 0-20. ÍKHÍ greiði 30.000 króna sekt til KKÍ. Halldór Halldórsson. Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.