19 nóv. 2017Craig Pedersen þjálfara karlalandsliðs Íslands og Finnur Freyr Stefánsson og Arnar Guðjónsson aðstoðarþjálfarar liðsins kynntu þá 12 leikmenn í blaðamannafundi í dag sem halda til Tékklands á mánudag til að etja kappi við heimamenn í undankeppni HM. Tvær breytingar voru gerðar á 12 manna liðinu sem var kynnt á dögunum en Pavel Ermolinskij getur ekki tekið þátt vegna meiðsla og Tryggvi Snær Hlinason fær ekki leyfi hjá félagsliði sínu að vera með í fyrri leiknum. En vonir standa til að hann geti verið með í seinni leiknum. Þeir Axel Kárason, Tindastóll, og Tómas Þórður Hilmarsson, Stjarnan, koma inn í stað þeirra Pavels og Tryggva. Tómas spilar sinn fyrsta A-landsliðsleik gegn Tékklandi.
Meira