19 des. 2017Í Domino’s körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport síðastliðinn föstudag voru verðlaun veitt fyrir bestu frammistöðuna á fyrri hluta keppnistímabilsins 2017-2018 í Domino's deildum karla og kvenna.
Það voru þau Ryan Taylor, ÍR, og Helena Sverrisdóttir, Haukum, sem voru kjörinn bestu leikmennirnir á fyrri hlutanum.
Þá voru úrvalsliðin kjörinn og voru þau þannig skipuð:
🏀Úrvalslið karla · Fyrri hluti 2017-2018
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Kári Jónsson · Haukar
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Ryan Taylor · ÍR
🏀Úrvalslið kvenna · Fyrri hluti 2017-2018
Danielle Rodriguez · Stjarnan
Hallveig Jónsdóttir · Haukar
Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík
Helena Sverrisdóttir · Haukar
Meira