23 nóv. 2018Þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, Craig Pedersen, og hans aðstoðarþjálfarar Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson, hafa valið 16 manna æfinghóp fyrir landsleikinn gegn Belgíu sem fram fer fimmtudaginn 29. nóvember í Laugardalshöllinni.
Um er að ræða annan leik liðsins í forkeppni EuroBasket 2021 en leikið er um sæti í riðlakeppninni sem hefst næsta haust. Ísland leikur einn leik í þessum landsliðsglugga og á svo tvo síðustu leiki sína í febrúar 2019, einn heima og einn úti.
Meira