12 nóv. 2026

Stelpurnar okkar unnu góðan 8 stiga sigur gegn Írlandi í Dublin í gærkvöldi. Leikurinn var í járnum framan af og liðin skiptust á að taka forystuna. Frábær þriðji leikhluti og öflugur endasprettur Íslands skilaði þessum mikilvæga sigri í hús. Lokatölur 73-81, Íslandi í vil. 

Rebekka var stigahæst með 18 stig og tók auk þess 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Stigaskor Íslands í leiknum:

Rebekka Rut 18 stig
Sara Rún 14 stig
Berglind Katla 14 stig
Diljá Ögn 8 stig
Kristrún Ríkey 8 stig
Þóranna Kika 6 stig
Emma 5 stig
Isabella Ósk 4 stig
Thelma Dís 2 stig
Ásta Júlía 2 stig

Næstu leikir eru heimaleikir gegn Sviss á laugardag kl. 16:00 og svo gegn Aserbaísjan næstkomandi þriðjudag kl. 19:30.

Miðasala á Stubb.is og FRÍTT inn fyrir 15 ára og yngri!

Fjölmennum og styðjum Stelpurnar okkar til sigurs!

Áfram Ísland!