
16 okt. 2026Jón Bender hafði í nægu að snúast í vikunni þegar hann sinnti eftirlitsstörfum fyrir FIBA í tveimur leikjum í Belgíu.
Fyrst var hann eftirlitsmaður á leik Castors Braine og ítalska liðsins GEAS Basket.
Seinni leikurinn var viðureign Basket Namur og franska liðsins Metropole Basket Feminin.
Dómarar leikjanna voru þeir Ciprian Stoica frá Rúmeníu, Ivan Iliev frá Búlgaríu og Simon Unsworth frá Bretlandi.
Alltaf gaman að sjá okkar fólk fá alþjóðleg störf.


