15 okt. 2026KKÍ hefur gengið frá ráðningu á Jamil Abiad sem aðstoðarlandsliðsþjálfara A-landsliðs kvenna. Samningurinn gildir út núverandi forkeppni fyrir EuroBasket 2029 en forkeppninni lýkur í febrúar 2027.

Jamil, sem er þjálfari Vals í Bónusdeild kvenna, mun jafnframt taka að sér þjálfun eins af yngri landsliðum kvenna sumarið 2027 og verður því með mikilvægt hlutverk í landsliðsstarfi KKÍ á komandi mánuðum.

Þjálfarateymi A-landsliðs kvenna í komandi undankeppni verður því skipað þeim Pekka Salminen aðalþjálfara ásamt aðstoðarþjálfurunum Daníel Andra Halldórssyni og Jamil Abiad, auk Arnórs Gauta Ragnarssonar styrktarþjálfara.

Með ráðningu Jamil heldur KKÍ áfram að styrkja þjálfarateymi landsliðanna og leggja þannig áherslu á samfellu í uppbyggingu og þróun kvennakörfuboltans á Íslandi.

KKÍ býður Jamil velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.