
20 nóv. 2026
Þjálfarateymi A-landsliðs karla hefur bætt Hilmari Péturssyni, leikmanni Keflavíkur, við æfingahópinn fyrir komandi verkefni gegn Bosníu og Tyrklandi. Hilmar bætist við öflugan og þéttan leikmannahóp sem kemur saman til æfinga næstkomandi sunnudag og æfir fram að heimaleiknum gegn Bosníu.
12 leikmenn verða valdir fyrir heimaleikinn gegn Bosníu og sömuleiðis fyrir ferðalagið til Tyrkland.
Við óskum Hilmari til hamingju með valið en hann á að baki fjóra A-landsleiki.
Landsleikirnir í nóvemberglugga A-landsliðs karla
Ísland - Bosnía í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember kl. 19:30
Tyrkland - Ísland í Istanbul sunnudaginn 29. nóvember kl. 16:00
Miðasalan fer fram hér á Stubb.is


