
29 sep. 2026Þrír leikir eru í kvöld á opnunardegi Bónusdeildar kvenna tímabilið 2026-2027.
Leikirnir hefjast allir kl. 19:15.
KR tekur á móti Stjörnunni í Vesturbænum. Ármann fær Grindavík í heimsókn og Tindastóll fær Keflavík norður í Skagafjörðinn.
Á morgun taka svo Valskonur á móti nýkrýndum meisturum meistaranna frá Njarðvík og Fjölniskonur mæta í Ólafssal þar sem Haukar bíða þeirra í síðasta skráða leik 1. umferðar Bónusdeildar kvenna þetta tímabilið.
Til að hita upp fyrir Bónusdeildirnar héldum við media dag á Hilton fyrir nokkrum dögum síðan og hér má sjá fyrsta opinbera myndbandið frá þeim skemmtilega degi.
Leikirnir eru auðvitað allir sýndir á SÝN Sport Ísland rásunum og svo er Körfuboltakvöld í beinni annað kvöld eftir að öllum leikjum umferðarinnar er lokið. Kíkið endilega á dagksránna sem er framundan í beinni hjá SÝN hér.


