25 sep. 2026

Spá formanna, fyrirliða og þjálfara Bónusdeildar kvenna fyrir komandi tímabil, 2026-2027, var birt á samfélagsmiðlum sambandsins fyrr í dag - hér má sjá myndbandið á FB og hér má sjá það á IG.

Samkvæmt spánni verða Njarðvíkurkonur deildarmeistarar en Grindavík verður ekki langt undan ef trú annarra liða á þeim reynist rétt.

Lokaniðurstaðan samkvæmt spá félaganna og heildarstig hvers félags fylgir hér:

  1. Njarðvík - 233
  2. Grindavík - 218
  3. KR - 202
  4. Haukar - 165
  5. Tindastóll - 140
  6. Keflavík - 126
  7. Valur -103
  8. Stjarnan - 80
  9. Ármann - 52
  10. Fjölnir - 31
Mest var hægt að fá 243 stig og er Njarðvík því 10 stigum frá fullu húsi stiga. Lægsti mögulegi stigafjöldi í spánni var 27 stig. 

Það er ljóst að það er spennandi tímabil framundan og við hlökkum til fyrstu umferðar sem hefst þriðjudaginn 29. september næstkomandi.

Meistarar meistaranna verður leikinn í Njarðvík í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Keflavík.