
4 sep. 2026
HM kvenna 2026 í körfubolta hefst í Berlín í dag og lýkur með úrslitaleik sunnudaginn 13. september.
16 bestu landslið heims leika á mótinu og verður gaman að fylgjast með sterkustu körfuknattleikskonum veraldar leika listir sínar. Bandaríkin eru ríkjandi heimsmeistarar og hafa unnið síðustu fjórar heimsmeistarakeppnir.
Við fáum að sjá vel valda leiki riðlakeppninnar í beinni á RÚV/RÚV2 næstu dagana og svo verða umspils og útsláttarleikir allir sýndir sömuleiðis í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins. Það er klárlega veisla framundan fyrir körfuboltaunnendur.
Upplýsingar um mótið má finna hér að neðan á opinberri heimasíðu mótsins:
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-womens-basketball-world-cup-2026
Leikir riðlakeppninnar í beinni útsendingu á RÚV/RÚV2 næstu daga:
4. september kl. 12:15 Bandaríkin - Kína RÚV
4. september kl. 15:45 Spánn - Þýskaland RÚV
5. september kl. 16:00 Þýskaland - Japan RÚV2
6. september kl. 18:45 Ítalía - Bandaríkin RÚV2
7. september kl. 18:45 Bandaríkin - Tékkland RÚV2


