
3 sep. 2026
Rúnar Birgir Gíslason var á ferð og flugi í ágúst á vegum FIBA, bæði sem eftirlitsmaður og tæknifulltrúi.
Fyrst var Rúnar yfireftirlitsmaður í Lúxemborg þar sem fór fram eitt af þremur mótum í B-deild U16 stúlkna. Í þessu móti voru 6 þjóðir, líkt og í mótinu í Grikklandi sem Ísland tók þátt í og voru það Portúgalir sem komust upp í A-deild eftir sigur á Finnum í úrslitaleik.
Rúnar fór svo eftir þetta mót til Zaragoza á Spáni sem hann var tæknifulltrúi í leik Spánar og Portúgal í undankeppni HM karla. Portúgalir sigruðu þar Spánverja og er þetta í fyrsta skipti sem Portúgalir vinna Spánverja í mótsleik. Jafnframt metur FIBA þetta sem óvæntustu úrslitin í þeim glugga keppninnar.


