31 ágú. 2026Í kvöld tekur A-landslið karla á móti Tyrklandi í næsta leik undankeppni HM 2027 í Katar. 

Strákarnir áttu virkilega flotta þrjá leikhluta gegn frábæru liði Serbíu síðastliðið föstudagskvöld í Belgrad.

Nú er komið að því að gera enn betur fyrir framan okkar eigin stuðningsfólk.

Ísland - Tyrkland hefst kl. 19:30 og er sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Síðustu miðarnir eru til sölu á Stubb.is og í Stubbur appinu. 

Áfram ÍSLAND!