10 ágú. 2026

U18 ára landslið stúlkna átti virkilega flott mót þegar liðið tók þátt í B-deild EuroBasket í Tulcea í Rúmeníu.

Stelpurnar okkar spiluðu í A-riðli mótsins og mættu þar heimastúlkunum frá Rúmeníu, Portúgal, Hollandi og Aserbaídsjan. Eftir erfiða byrjun í fyrsta leik gegn afar sterku liði Rúmeníu sem endaði í 2. sæti mótsins kom góður kafli íslenska liðsins í riðlinum en þær unnu alla þrjá næstu leiki A-riðils sem tryggði þeim sæti í 8-liða úrslitum.

Þar voru andstæðingarnir ekki af verri endanum, lið Ísraels, en okkar stelpur náðu ekki að hrinda þeirri hindrun úr veginum enda urðu Ísraelar að lokum sigurvegarar B-deildar EuroBasket þetta árið. Stelpurnar okkar fóru í kjölfarið í umspil um sæti 5-8 þar sem þær unnu fyrst öruggan sigur gegn Bretum og að lokum 1 stigs háspennusigur í sveiflukenndum leik um 5. sæti mótsins. Virkilega vel gert stelpur!


Úrslit leikja Íslands í B-deild EuroBasket í Tulcea í Rúmeníu 2026:

Riðlakeppnin A-riðill


ÍSLAND 73 - 100 Rúmenía
ÍSLAND 91 - 73 Portúgal
ÍSLAND 85 - 62 Holland
ÍSLAND 77 - 74 Aserbaídsjan

8-liða úrslit

ÍSLAND 69 - 89 Ísrael 

Umspil 5. - 8. sæti

ÍSLAND 102 - 77 Bretland

Leikur um 5. sæti

Ísland 78 - 77 Grikkland 

Niðurstaðan eins og áður segir 5. sæti og þar með topp 21 í Evrópu í þessum aldursflokki kvennamegin. Okkar öfluga lið er klárlega á góðri vegferð og verður gaman að sjá þróun liðsins í náinni framtíð. Mikil stemning einkennir liðsheildina og margar flottar einstaklings- og liðsframmistöður litu dagsins ljós í Rúmeníu. Til hamingju öll með árangurinn.

U18 ára landslið stúlkna sem lék í B-deild EuroBasket þetta árið í Rúmeníu var þannig skipað: 

Arnheiður Ólafsdóttir - Haukar
Berta María Þorkelsdóttir - Valur
Brynja Benediktsdóttir - Ármann
Harpa Karítas Kjartansdóttir - Fjölnir
Hulda María Agnarsdóttir - Njarðvík
Inga Lea Ingadóttir - Njarðvík
Katla Guðjónsdóttir - Fjölnir
Kristín Björk Guðjónsdóttir - Njarðvík
Rebekka Rut Steingrímsdóttir - KR
Sara Björk Logadóttir - Njarðvík
Sigrún Sól Brjánsdóttir - Stjarnan
Þórey Tea Þorleifsdóttir - Grindavík

Þjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar eru Margrét Ósk Einarsdóttir og Anna Fríða Ingvarsdóttir.

Takk fyrir flott mót stelpur og aðstandendur og til hamingju með ykkur!

Áfram ÍSLAND!