
23 júl. 2026
U18 ára landslið karla er mætt til Króatíu þar sem strákarnir okkar leika í B-deild EuroBasket (EM) í Rijeka og Opatija í Króatíu.
Leikjaplan, riðlaskiptingu, myndir frá leikjunum, beint opið streymi frá öllum leikjum og aðrar upplýsingar má finna á opinberri heimasíðu mótsins:
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-eurobasket-2026-division-b
Leikjadagskrá strákanna okkar í B-riðli mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:
24. júlí kl. 16:00 ÍSLAND - Portúgal (Rijeka)
25. júlí kl. 16:00 ÍSLAND - Tékkland (Opatija)
26. júlí kl. 08:30 ÍSLAND - Aserbaídsjan (Rijeka)
28. júlí kl. 18:30 ÍSLAND - Úkraína (Rijeka)
29. júlí kl. 11:00 ÍSLAND - Pólland (Opatija)
8-liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um sæti 9-22 hefst föstudaginn 31. júlí og mótinu lýkur sunnudaginn 2. ágúst.
U18 ára landslið karla er skipað eftirfarandi leikmönnum:
Benóní Stefan Andrason - KR
Bóas Unnarsson - Njarðvík
Daníel Geir Snorrason - Stjarnan
Freyr Jökull Jónsson - Breiðablik
Jakob Kári Leifsson - Stjarnan
Jón Árni Gylfason - Skallagrímur
Leó Steinsen - Svíþjóð
Páll Gústaf Einarsson - Bandaríkin
Patrik Joe Birmingham - Bandaríkin
Róbert Óskarsson - Bandaríkin
Steinar Rafn Rafnarsson - Stjarnan
Sturla Böðvarsson - Snæfell
Þjálfari liðsins er Ísak Máni Wíum og honum til aðstoðar eru Mikael Máni Hrafnsson og Ismael Herrero Gonzalez.
Við hlökkum til að fylgjast með strákunum okkar í Króatíu næstu dagana.
Áfram ÍSLAND!


