3 júl. 2026
U16 ára landslið karla hélt í gærmorgun út til Finnlands, nánar tiltekið til Kisakallio, á Norðurlandamótið (NM) en strákarnir hefja leik gegn Noregi í dag, föstudag og við hlökkum til að fylgjast með liðinu næstu dagana.
Bein streymi frá leikjunum og upplýsingar um mótið má finna hér:
https://koristv.fi/nordicchamps/games/event/mu16-kansainvaeliset-2026-2027
Leikjadagskrá U16 ára karla á íslenskum tímum:
3. júlí kl. 16:40 ÍSLAND - Noregur 4. júlí kl. 16:25 ÍSLAND - Svíþjóð 5. júlí kl. 16:40 ÍSLAND - Eistland 7. júlí kl. 10:55 ÍSLAND - Danmörk 8. júlí kl. 11:55 ÍSLAND - Finnland
U16 ára landslið karla skipa:
Arnar Freyr Elvarsson Árni Atlason Atli Freyr Haraldsson Katrínarson Baltasar Torfi Hlynsson Davíð Breki Antonsson Hlynur Ingi Finnsson Jón Breki Sigurðarson Kormákur Nói Jack Kristinn Sturluson Sigurður Karl Guðnason Sindri Logason Úlfur Týr Ágústsson
Þjálfari liðsins er Dino Stipcic og honum til aðstoðar eru Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.
Dómarar sem koma frá Íslandi til að dæma á U16 í Finnlandi í sumar eru Arnar Þór Þrastarson og Jessie Rosallosa.
Áfram Ísland!