26 maí 2026

Stjarnan/KFG urðu Íslandsmeistarar í 11. flokki drengja 21. maí síðastliðinn með sigri á KR/KV. Stjarnan/KFG vann fyrsta leikinn í Ásgarði og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram á Meistararavöllum. Leikurinn fór 71-78 Stjörnunni/KFG í vil. Þjálfarar liðsins eru Ilija Omrcen og Bogi Sigurbjörnsson. 

Steinar Rafn Rafnarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 20,7 stigum, 8,3 fráköstum og 5 stoðsendingum. 

Til hamingju Stjarnan/KFG!