.jpg)
20 maí 2026
FIBA Europe þing og öðrum fundum sem voru því samhliða lauk um helgina á Grand Hótel.
Þetta er stærsti viðburður sem KKÍ hefur haldið fyrir FIBA Europe en fulltrúar 47 þjóða ásamt starfsfólki FIBA Europe og FIBA sóttu þingið eða um 150 manns.
Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ tóku þátt í þinginu að hluta og meðal annars flutti Willum Þór ávarp við upphaf þings. Mikil ánægja fundargesta og FIBA Europe var með allt skipulag og vinnu KKÍ sem er mjög ánægjulegt.
KKÍ þakkar öllum þeim sem komu að vinnu og skipulagi þessar viðburðar fyrir gott samtarfs og góða vinnu.


