14 maí 2026

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 58/2025-2026

Í ljósi háttsemi áhorfanda/áhorfenda í leik Breiðabliks og Sindra sem fram fór 11. maí 2026, þar sem steini var kastað inn á leikvöllinn skal Breiðablik fá áminningu, sbr. h-lið 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál. Við ákvörðunina er þá litið til þess að gæsla og starfsmenn leiksins brugðust hratt við atvikinu og gerðu viðeigandi ráðstafanir.