29 apr. 2026

Ingvar Örn Ákason hefur verið ráðinn í nýja stöðu markaðs - og kynningarfulltrúa á skrifstofu KKÍ.  Ingvar mun hefja störf 1. júní.  

Ingvar kemur með mikla reynslu úr íþróttaheiminum en hann starfaði sem handknattleiksþjálfari í 20 ár, hefur lýst boltaíþróttum í sjónvarpi til margra ára og verið sjálfboðaliði í kringum boltaíþróttir með ýmsum hætti t.d. sem kynnir á leikjum og viðburðum. Síðustu árin hefur Ingvar verkefnastýrt sjónvarpsútsendingum HSÍ í Sjónvarpi Símans og þar með haft yfirumsjón yfir Handboltapassanum. Ingvar er að klára BA gráðu frá Háskólanum á Bifröst í Miðlun og almannatengslum en slík gráða í bland við reynslu úr íþróttaheiminum mun nýtast mjög vel í nýju starfi fyrir KKÍ og aðildarfélögin.

Ingvar er metnaðarfullur og spenntur fyrir nýjum áskorunum sem fylgir nýrri stöðu innan körfuknattleikshreyfingarinnar: "Sóknartækifærin eru víða og margt spennandi framundan sem við ætlum að gera saman til að bæta heildarumhverfi körfuboltans ennfrekar". 

KKÍ býður Ingvar hjartanlega velkominn til starfa.