12 mar. 2025

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 55/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Leikmaður, leikmaður Njarðvíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis gegn Njarðvík í 11 flokki drengja, sem fram fór þann 3 mars 2025.

Agamál 56/2024-2025

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ísak Máni Wium, þjálfari ÍR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR gegn Stjörnunni í 12. flokki karla , sem fram fór þann 4 mars 2025.

Agamál 57/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adomas Drungilas, leikmaður Tindastóls, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastól gegn Keflavík, sem fram fór þann 6 mars 2025.

Agamál 59/2024-2025

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur gegn Njarðvík, sem fram fór þann 7 mars 2025.