7 sep. 2026

Deildarkeppni yngri flokka fór af stað um nýliðna helgi með leikjum í 9. og 10. flokki og fóru leikirnir fram um allt land.

Þessi helgi í upphafi september er kveikjan að stemningunni sem framundan er í flestum íþróttahúsum landsins þar sem þúsundir leikja verða spilaðir þegar horft er yfir alla flóruna, yngstu flokkana og upp í meistaraflokk. 

Við hlökkum til að fylgjast vel með starfi félaganna á komandi misserum og nú er tíminn til að drippla, senda og skjóta. 

Landsleikjasumar yngri flokka var algjörlega til fyrirmyndar og vonandi forsmekkurinn að því sem koma skal í vetur. Sömuleiðis hefur stemningin í úrvalsbúðum KKÍ verið góð - allt hefur þetta vonandi góð áhrif á umgjörð yngri flokkanna.

Áfram íslenskur körfubolti og góða skemmtun öll sem eitt.