1 nóv. 2024
Frá og með 5. nóvember mun framkvæmdastjóri KKÍ, Hannes S. Jónsson, verða í leyfi frá störfum fram yfir Alþingiskosningarnar 30. nóvember en eins og flestum ykkar er kunnugt um er hann í framboði til Alþingis. Þegar ljóst var að Hannes yrði á framboðslista óskaði hann eftir leyfi og hafa formaður og stjórn sambandsins samþykkt það.
Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, formaður, verður í forsvari fyrir sambandið á meðan og Sigrún Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri, mun stýra verkefnum skrifstofu sem staðgengill framkvæmdastjóra.