31 okt. 2024
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 3/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Rafn Kristján Kristjánsson, leikmaður Fjölnis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamars gegn Fjölni, sem fram fór þann 26 október 2024.
Agamál 4/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Kristján Fannar Ingólfsson, leikmaður Stjörnunnar/KFG, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar/KFG gegn Njarðvík, sem fram fór þann 27 október 2024.