23 okt. 2024

VÍS Bikarinn | 16 liða úrslit

Dregið var í 16 liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna í Laugardalnum í dag. 16 liða úrslitin verða leikin dagana 7.-9. desember nk. og dregið verður í 8 liða úrslit VÍS bikarkeppninnar þann 12. desember. VÍS bikarúrslitin sjálf verða leikin dagana 18.-23. mars nk. í Smáranum. Þar sem konurnar leika undanúrslit þann 18. mars, karlarnir 19. mars og úrslitaleikirnir sjálfir verða 22. mars.

VÍS BIKAR KARLA

Leikið verður dagana 8.-9. desember (sunnudagur/mánudagur).

Þór Þ. – Stjarnan

Breiðablik – Haukar

Álftanes – Snæfell

Sindri – KV

Njarðvík – Selfoss

Keflavík – Tindastóll

Höttur – KR

Valur - Grindavík

VÍS BIKAR KVENNA

Leikið verður dagana 7.-8 desember (laugardagur/sunnudagur).

Hamar/ Þór Þ. – KR

Grindavík – Snæfell

Aþena – Ármann

Valur – Haukar

Fjölnir – Stjarnan

Selfoss – Tindastóll

ÍR – Þór Ak.

Njarðvík - Keflavík