12 júl. 2024

Á morgun laugardag 13.júlí er komið að því fyrir U20 ára strákanna okkar að hefja leik í A-deild EuroBasket yngri landsliða þetta sumarið en 16 efstu þjóðirnar í þessum aldursflokki keppa í A-deild. Mótið fram fer í Gdynia í Póllanid og mæta stákarnir okkar Litháen í fyrsta leik kl.13:30 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur sunnudaginn 21. júlí. Þetta er annað árið í röð sem U20 karla spilar í A-deild.

 

16 þjóðir taka þátt í A-deildinni í fjórum riðlum, strákanir okkar eru í riðli með Litháen, Svartfjallalandi og Slóveníu. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1.-8. og 9.-16.

37 þjóðir taka þátt í U20 EuroBasket karla , 16 bestu þjóðir Evrópu eru í A-deild og 21 þjóð eru svo  í B-deild,

 

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U20 European Championship:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u20-eurobasket-2024

Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

 

Pétur Sigurðsson þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

“Undirbúningurinn hefur gengið vel.  Stífar æfingar og útkoman góð eins og komið er, gott að fá NM svona nokkrum dögum fyrir leiki að slípa okkur til og sjá einnig hvað þarf að laga.  Við erum með marga leikmenn sem  spiluðu í A-deildinni í fyrra þá á yngra ári og erum því  reynslumeiri á stóra sviðinu. 

Við komum með litlu pressu á okkur inn í þetta mót en setjum pressu á okkur sjálfa að vinna leiki. Það eru sterkir karkaterar í liðinu hjá okkur og við ætlum okkur að  koma með íslensku báráttuna og leikgleðina í farteskinu. Við erum klárlega með hóp sem getur komið á óvart og strítt þessum stóru körfuboltaþjóðum” ´

 

 

U20 karla er skipaði eftirtöldum leikmönnumá EM
Almar Orri Atlason - Bradley, USA
Ágúst Goði Kjartansson - Black Panthers Schwenningen, Þýskaland
Daníel Ágúst Halldórsson - Fjölnir
Elías Bjarki Pálsson - Njarðvík
Friðrik Leó Curtis - ÍR
Hallgrímur Árni Þrastarson - KR
Haukur Davíðsson - New Mexico M.I. USA
Hilmir Arnarson - Haukar
Jonathan Sigurðsson – NYU, USA
Kristján Fannar Ingólfsson - Stjarnan
Reynir Bjarkan Róbertsson - Þór Akureyri
Tómas Valur Þrastarson - Þór Þorlákshöfn

 

Þjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Aðstoðarþjálfarar: Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic
FIBA dómari: Davíð Tómas Tómasson
Sjúkraþjálfari:  Hilmar Þór Hilmarsson