3 jún. 2024

Selfoss varð meistari í 9. flokki drengja í 4. deild 19. maí síðastliðinn með sigri á Laugdælum/Hrunamönnum. Leikurinn fór fram í Vallaskóla og fór leikurinn 57-54 í æsispennandi leik. 

Stefán Karl Eyglóarson var valinn verðmætasti leikmaður leiksins með 11 stig og 18 fráköst.

Til hamingju Selfoss!