3 nóv. 2023

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 2/2023-2024

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Keflavík gegn Þór/Hamar, sem fram fór þann 30 september 2023.

Agamál 4/2023-2024

Með vísan til ákvæðis c-liðar 1. mgr. 13. gr., reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ismael Herrero Gonzalez, sæta eins leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis og Sindra í 1. deild karla sem fram fór þann 6. október 2023.

Agamál 6/2023-2024

Með vísan til ákvæðis c-liðar 1. mgr. 13. gr., reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Benjamin M Caterinos, sæta eins leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis B og ÍR í 10. flokki drengja sem fram fór þann 9. október 2023.