3 nóv. 2023Íslenska kvennalandsliðið leikur í nóvember sína fyrstu leiki í nýrri undankeppni fyrir EM, EuroBasket Women's 2025.

Dregið var í riðla í september og leikur Ísland í F-riðli keppninnar með Tyrklandi, Slóvakíu og Rúmeníu.
RÚV mun sýna báða leikina í beinni útsendingu, útileikinn 9. nóv. gegn Rúmeníu á RÚV og heimaleikinn 12. nóv. gegn Tyrklandi á RÚV2.

Heimaleikurinn 12. nóvember verður í Ólafssal í Hafnarfirði kl. 18:30. Aðgangur verður ókeypis í boði Lykils, en Lykill hefur verið öflugur samstarfsaðili KKÍ í meira en 10 ár.

Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 13 leikmenn til að leika þessa tvo leiki. Nýliðarnir Ísold Sævarsdóttir, Stjörnunni, og Jana Falsdóttir, Njarðvík, munu spila sitthvorn leikinn, Ísold þann fyrri ytra og Jana seinni leikinn hér heima. 

Tveir leikmenn sem valdir voru nú gátu ekki tekið þátt að þessu sinni. Sara Rún Hinriksdóttir sem leikur með AE Sedis Bàsquet á Spáni er frá vegna meiðsla og Hildur Björg Kjartansdóttir gat ekki gefið kost á sér að þessu sinni. Helena Sverrisdóttir snýr aftur í landsliðið en hún hefur einnig verið frá vegna meiðsla en hún er landsleikjahæsti leikmaður liðsins og mun verða landsleikjahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi eftir leikinn gegn Rúmeníu.

Eftirtaldir leikmenn skipa landsliðshópin í nóvember:

Nafn · Félag · Landsleikir
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík · 8
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur · 12
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík · 9
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur · 18
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík · 13
Helena Sverrisdóttir · Haukar · 79
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Panserraikos Serres, Grikklandi · 12
Ísold Sævarsdóttir · Stjarnan · Nýliði
Jana Falsdóttir · Njarðvík · Nýliði
Sara Líf Boama · Valur · 2
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík · 18
Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar · 4
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar · 31

Þjálfari: Benedikt Rúnar Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir · Atlas Endurhæfing
Læknir: Berglind LáruGunnarsdóttir 


Leikdagar í þessum glugga: 
Gluggi 1 · Nóvember 2023
9. nóv. úti: Rúmenía - Ísland kl. 16:00 að íslenskum tíma (Constanta, Rúmeníu)
12. nóv. heima: Ísland-Tyrkland · kl. 18:30, Ólafssal · Aðgangur ókeypis í boði Lykils

Næst verður leikið í nóvember 2024 í keppninni en þá verða tveir heimaleikir á dagskránni.

Heimasíða keppninnar:
https://www.fiba.basketball/womenseurobasket/2025/qualifiers