1 nóv. 2023Tveir íslenskir aðilar verða við störf á vegum FIBA í dag 1. nóvember en Jón Bender eftirlitsmaður FIBA og Bjarki Þór Davíðsson  FIBA dómari verða með leiki í FIBA Europe Cup karla og EuroCup Women kvenna.

Jón Bender heldur til Danmerkur og verður að stýra karlaleik Bakken Bears gegn Norrköping Dolphins frá Svíþjóð í nágrannaslag E-riðils í FIBA Europe Cup. Um er að ræða mikilvægan leik en bæði lið hafa tapað sínum fyrstu tveim leikjum hingað til í keppninni.

Bjarki Þór Davíðsson dómari verður í kvöld í London á sama tíma og dæmir kvennaleik London Lions gegn GDESSA-BARREIRO í I-riðli keppninnar. Leikurinn fer fram í London Copper Box en Lions hafa unnið þrjá leiki af þrem á meðan GDESSA hefur tapað sínum fyrstu þrem.

KKÍ óskar þeim félögum Jóni og Bjarka Þór góðs gengis í þessum verkefnum sínum í kvöld.

Hægt er að horfa á leikina á heimasíðu hvorrar keppni:

Keppni karla: FIBA Europe Cup 
www.fiba.basketball/europecup/23-24

Keppni kvenna: EuroCup Women
https://www.fiba.basketball/eurocupwomen/23-24