21 sep. 2023

Kynningarfundur Subway deildar kvenna verður haldinn í hádeginu í dag, en honum verður streymt beint á visir.is. Á fundinum verður kynnt spá þjálfara, fyrirliða og formanna liða í 1. deild kvenna, spá fjölmiðla fyrir Subway deild kvenna og spá þjálfara, fyrirliða og formanna liða í Subway deild kvenna.